|
|
 |
 |
|
 |
| Rangársel | Húsið er með 3 svefnherbergjum, tvö eru með hjónarúm ásamt kojum og 1 herbergi er bara með kojum, húsið hýsir allt að 8 manns. Það er heitur pottur á verönd, nýtt kolagrill, útiborð og stólar í geymsluhúsi á veröndinni við bústaðinn og rólur bakatil. Á veröndinni er jafnframt salerni með sturtu. Í húsinu er ísskápur með frysti, örbylgjuofn, eldavél með innbyggðum ofni og uppþvottavél, allt leirtau ásamt öðrum eldhúsbúnaði er í eldhúsi. Sængur og koddar eru á staðnum en fólk þarf að taka með sér sængurfatnað, handklæði, viskastykki og borðklúta. Hreinlætisvörur eru í geymslunni og er fólk beðið að þrífa vel eftir sig.
húsið hefur nýlega verið tekið í gegn og eru öll gólfefni ný ásamt innréttingum. |  | | Myndir |  | |  | | Helstu upplýsingar um húsið |  | | | | | | | | | |  |
| Lausar vikur
|
| | Svæðið |  | | Bústaðurinn er leigður út allt árið, yfir vetrarmánuðina er hann leigður frá föstudegi til sunnudags og kostar helgin kr. 8.500,-, auka nótt kostar kr. 1.800,- greiða þarf dvölina innan viku frá pöntun annars fellur hún niður án frekari viðvörunar. Greiða þarf inn á reikning félagsins 0152-26-16241 kt: 690269-1479. Vikuleiga yfir sumarmánuðina er kr. 15.000. Lyklar eru afhentir á skrifstofu Verslunarmannafélags Suðurlands, Austurvegi 56, Selfossi.
Rangársel er í sumarhúsabyggð í Reykjaskógi sem er í landi Reykja í Biskupstungum. Margar fallegar gönguleiðir eru á svæðinu og örstutt er að skreppa á Gullfoss og Geysir. Í Úthlíð er sundlaug og verslun og stutt er að skreppa á Laugarvatn þar sem öll almenn þjónusta er á staðnum ásamt sundlaug og bátasiglingu á vatninu svo eitthvað sé nefnt. |  | | Nágrennið |  | | Ekki er langt að keyra til Flúða en stutt er þaðan að prestsetrinu og kirkjustaðnum Hruna. Þar gerðist þjóðsagan alkunna, Dansinn í Hruna sem fjallar um prestinn sem hafði dansleik í kirkjunni í stað guðsþjónustu á jólanótt. Móðir prestsins reyndi að fá son sinn til að hætta þessum ósið en hann skeytti ekki ráðum hennar. Endaði þetta svo með þeim ósköpum að kirkjan sökk niður í jörðina með presti og öllum sem með honum voru. Sést enn í dag djúpur slakki þar sem kirkjan stóð áður.
Á Syðra Langholti í Hrunamannahrepp er vaxandi ferðaþjónustubýli, þaðan er farið í lengri og skemmri hestaferðir.
|
| |
|
|
|
 |
| Launatöflur 2009 |
Gildir frá 1.nóvember 2009 Meðf. launatafla gildir frá 1.nóvember 2009. Desemberuppbótin 2009 er 51.800,- Smellið á linkinn hér að neðan til að skoða PDF skjal. Launatöflur kjarasamnings |
|
| |
|
|
|