|
|
 |
 |
|
 |
| Flúðasel | Húsið er fyrir 8-10manns. Húsið hefur nýlega verið tekið allt í gegn og byggt við það. Þar eru nú þrjú herbergi með rúmum fyrir 8 manns auk tveggja gestarúma sem eru á staðnum. 8 sængur og koddar eru í húsinu. Þar er nýr heitur pottur, kolagrill, útiborð og stólar í geymslu sem er við bústaðinn. Í húsinu eru tvö sjónvörp, sambyggt DVD og VHS tæki, örbylgjuofn, ísskápur með frysti, uppþvottavéla, eldavél með ofni ásamt öllum öðrum nauðsynlegum eldhúsáhöldum. Í útihúsi er fullbúið baðherbergi með sturtu og upphituð geymsla. Á lóðinni er nýr sólpallur, ný leiktæki fyrir börn ásamt því að svæðinu hefur verið breytt þannig að hægt er að reisa tjald eða fellihýsi á flötinni.
Það þarf að taka með sér sængurfatnað, handklæði, viskastykki og borðklúta. Hreinlætisvörur eru í skáp í sjónvarpsholi og er fólk beðið að þrífa vel eftir sig og virða húsreglur. |  | | Myndir |  | |  | | Helstu upplýsingar um húsið |  | | | | | | | | | | Fjarlægð frá Selfossi | 56km |
|  |
| Lausar vikur
|
| | Svæðið |  | | Á Syðra Langholti er vaxandi ferðaþjónustubýli, þaðan er farið í lengri og skemmri hestaferðir. Í nágrenni Flúða er prestsetrið og kirkjustaðurinn Hruni. Þar gerðist þjóðsagan alkunna, Dansinn í Hruna sem fjallar um prestinn sem hafði dansleik í kirkjunni í stað guðsþjónustu á jólanótt. Móðir prestsins reyndi að fá son sinn til að hætta þessum ósið en hann skeytti ekki ráðum hennar. Endaði þetta svo með þeim ósköpum að kirkjan sökk niður í jörðina með presti og öllum sem með honum voru. Sést enn í dag djúpur slakki þar sem kirkjan stóð áður. Það er margt skemmtilegt og fróðlegt að skoða í nágrenni Flúðabústaðar skemmtilegar gönguleiðir og marga góða bíltúra hægt að fara í, t.d. má nefna Gullfoss og Geysir, Skálholt, Laugarás og Bræðratungu. Úthlíð í Biskupstungum er gamall kirkjustaður og meðal stærstu jarða landsins, þar er útivistarsvæði með sundlaug og fleiru og ekki má gleyma Laugarvatni, þar myndaðist byggðakjarni kringum gamla skólasetrið og þar er rekin þjónustumiðstöð með sundlaug gufuböðum veitingastöðum o.fl. Flúðabústaður er leigður út allt árið, yfir vetrarmánuðina er hann leigður frá föstudegi til sunnudags og kostar helgin kr. 8.500,-, auka nótt kostar kr. 1.800,- greiða þarf dvölina innan viku frá pöntun annars fellur hún niður án frekari viðvörunar. Greiða þarf inn á reikning félagsins 0152-26-16241 kt: 690269-1479. Vikuleiga yfir sumarmánuðina er kr. 15.000. Lyklar eru afhentir á skrifstofu Verslunarmannafélags Suðurlands, Austurvegi 56, Selfossi. |  | | Nágrennið |  | | Flúðir er ungt þéttbýlilshverfi á austurbakka Litlu Laxár í Hrunamannahreppi. Allmargir garðyrkjubændur hafa sest að á Flúðum og rækta þar bæði úti sem og í gróðurhúsum, þar er einnig mesta svepparækt landsins. Á Flúðum er Límtrésverksmiðjan Límtré hf. sú eina sinnar tegundar á landinu.
Á Flúðum er öll hugsanleg þjónusta, verslanir, veitingastaðir, sundlaug, hótel, tjaldstæði, golfvöllur, banki, pósthús og flugvöllur svo eitthvað sé nefnt. |
| |
|
|
|
 |
| Launatöflur 2009 |
Gildir frá 1.nóvember 2009 Meðf. launatafla gildir frá 1.nóvember 2009. Desemberuppbótin 2009 er 51.800,- Smellið á linkinn hér að neðan til að skoða PDF skjal. Launatöflur kjarasamnings |
|
| |
|
|
|