Forsíða Kjarasamningur 2008Lágmarkslaun LögfræðiþjónustaSkýrsla stjórnar 2010FréttirMyndasafnLög félagsinsUm okkur Hafa samband
 
Umsóknir
Úr starfsmenntasjóði
Inntökubeiðni í félagið
Um styrk úr sjúkrasjóði
Um dánarbætur
Um sjúkradagpeninga
Skilagrein
Orlofssjóður

Orlofshúsin

Rangársel
Flúðasel
 
 

 
Skýrsla stjórnar 2010

Kæru félagar,

einkennilegt ár er liðið frá síðasta aðalfundi, það er ótrúlegt að í dag er nánast hægt að endurtaka þau orð sem ég hóf skýrslu ársins 2008 til 2009 á. Það hefur lítið breyst á heilu ári. Við glímum í dag við sama vanda og óvissan er engu minni nú en hún var þá. Ég ætla að endurtaka upphafsorð mín frá síðasta aðalfundi sem voru:

Miklar sviptingar hafa orðið í þjóðfélaginu og ég tel að fáa hafi grunað að við stæðum í þeim sporum sem við stöndum í í dag. Við Íslendingar upplifum nú þrjár kreppur í einu, fjármálakreppu, efnahagskreppu og gjaldeyriskreppu. Þetta segji ég í þeirri trú að stjórnarkreppan sé liðin hjá eftir alþingiskosningar nú um síðustu helgi.

Ef eitthvað er þá stöndum við nú frammi fyrir stjórnarkreppu því eftir að rannsóknarskýsla alþingis kom út þykir mér nokkuð ljóst að afsagnir æðstu ráðamanna og þingmanna eru óumflýjanlegar.

En nú ætla ég í stuttu máli að greina frá því hvernig árið leið hjá okkur í stjórn Verslunarmannafélags Suðurlands.

Stjórnin hefur haldið 17 stjórnarfundi á tímabilinu og þar af voru tveir fundir haldnir með trúnaðarráði. Nokkuð álag hefur verið á stjórninni þar sem veikindi formanns og starfsmanns hefur haft mikil áhrif á dagleg störf á skrifstofunni. Hugrún vann hjá okkur fullt starf til 1. Október 2009 þegar hún var síðan fastráðinn í 50% starf. Jóna hefur minnkað við sig vinnu og vinnur hún nú 50% starf á móti Hugrúnu.

En svo við snúum okkur aftur að liðnu ári félagsins þá vorum við með opið hús á í sal Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Selfossi 1. Maí á síðasta ásamt Félagi iðn og tæknigreina, Verði félagi stjórnenda og Bárunni stéttarfélagi. Buðum við upp á morgunkaffi og voru þónokkrir sem litu við og þáðu veitingar.

Nú hins vegar ætlum við að vera róttækari og sýnilegri á þessum baráttudegi verkalýðsins. Okkur hefur verið legið á hálsi að ekki kveði nógu mikið að okkur í verkalýðshreyfingunni á þessum óvissutímum og hér vanti sárlega nýjan Guðmund Jaka og að kröfur heyrist frá okkur um bætt og betri lífskjör.

Við ætlum því að fara í kröfugöngu á 1. Maí. Gangan hefst klukkan 10 laugardaginn 1. Maí og verður gengið frá skrifstofum ÞSS við Austurveg 56 að planinu við Hótel Selfoss. Lúðrasveit Selfoss mun leiða gönguna en á planinu verða fluttar ræður og Ingó mun síðan loka dagskránni með léttri skemmtun. Boðið verðu uppá kaffi, kleinur og rúnnstykki í anddyri hótelsins. Við vonum svo sannarlega að félagsmenn og aðrir sýni þessu áhuga og mæti. Yfirskrift 1. Maí í ár verður: Við viljum vinna.

Ársfundur ASÍ var haldinn 22 og 23. Október s.l. á Hilton Reykjavík Nordica hóteli í Reykjavík. Yfirskrift fundarins var Byggjum réttlátt þjóðfélag. Kjörnir fulltrúar VMS voru Margrét Ingþórsdóttir formaður félagsins og Hugrún Ólafsdóttir starfsmaður og stjórnarmaður. Vegna innri málefna VR gátu þeir ekki fullmannað alla þá fulltrúa sem þeir fengu úthlutað og því fengum við á síðustu metrunum tvo auka fulltrúa á fundinn. Þeir Guðmundur Gils Einarsson og Kristján Hálfdánarson stjórnarmenn sátu því einnig ársfundinn. Fundurinn gekk vel en hann var með aðeins breyttu sniði og gafst meiri tími nú til umræðna í nefndum en áður og ályktanir ekki samdar fyrirfram eins og svo oft hefur verið. Samþykktar voru alls átta ályktanir um atvinnumál, efnahags- og kjaramál, hag heimilanna, skattlagningu á inngreiðslur í lífeyrissjóði, heildarendurskoðun á stefnu Alþýðusambandsins í málefnum lífeyrissjóða, skaðabótalög, tekjutengingu lífeyris og örorkulífeyri. Allar ályktanir og umræður frá ársfundinum má finna á vef Alþýðusambandsins asi.is.

Á fundinum var Ingibjörg R. Guðmundsdóttur endurkjörinn varaforseti Alþýðusambandsins.

Alþýðusambandið stóð fyrir stefnumótunarfundi í Hótel Selfossi 18 – 19 febrúar þar sem lögð var fram spurningin –Hverju þarf að breyta í lífeyriskerfinu? Unnið var í hópum og margar hugmyndir sem urðu til. Niðurstöður úr þessari vinnu verða síðan uppistaðan að umræðunni um lífeyriskerfið í heild, sem væntanlega verður eitt af verkefnum ársfundar 2010.

Á ársfundinum 2008 var fjallað um fundarröð með stjórnum, varastjórnum og trúnaðarráðum aðildarfélaga ASÍ þar sem efnt yrði til umræðu um skipulag ASÍ.

Markmið fundanna var að frá fram með skiplögðum hætti viðhorf og væntingar í hreyfingunni til uppbyggingar og skipulags verkalýðshreyfingarinnar. Farið var í fundarherferð um landið undir forystu Grétars Þorsteinssonar fyrrverandi forseta ASÍ. Haldnir voru alls 10 fundir og var haldinn fundur á Selfossi 24. Mars.

Á fundinum var unnið í hópum og skipt í 7 hópa og unnið með spurningarnar Hlutverk ASÍ, Skipulag ASÍ, staða ungs fólks innan ASÍ, jafnræði kynjanna innan stjórnskipulags ASÍ, Jafnræði höfuðborgar og landsbyggðar og skipulag aðildar að kjarasamningum.

Niðurstöður fundanna verða síðan upplag í skipulagsumræðum sem fram munu fara á ársfundi ASÍ í október n.k.

Aðsókn að orlofshúsum félagsins hefur verið gríðarleg í vetur og umsóknir í sumar nokkuð margar. Verið er að úthluta vegna sumarsins 2010 og ljóst að synja þarf fjölda félagsmanna um orlofshús. Við í stjórninni höfum ákveðið að koma til móts við þá félaga sem ekki fá úthlutað orlofshúsi með sérstökum endurgreiðslum í sumar eins og við gerðum síðasta sumar.

Veittur verður orlofsstyrkur vegna gistingar innanlands allt að 50% af kostnaði að hámarki 15.000,-. Rétt til styrks eiga allir þeir sem greitt hafa félagsgjöld s.l. sex mánuði og ekki fengið úthlutað orlofshúsi. Styrkurinn gildir fyrir gistingu sem keypt er á orlofstímabilinu 2010 (þ.e. frá 2. Maí -15. September)

Gisting innanlands telst leiga á sumarhúsum á almennum markaði, tjaldstæði, leiga á tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum, hótelgisting, bændagisting og fl.

Þess ber að geta að framvísa verður löglegum nótum með nafni og kennitölu félagsmanns til að hljóta endurgreiðslu.

Síðustu þrjú ár höfum við þurft að aflýsa sumarferðinni okkar vegna lélegrar þátttöku og á síðasta ári vorum við ákveðin í að sætta okkur við að hætta við þessar ferðir. Í ljósi þess að aðstæður á Íslandi höfðu breyst nokkuð mikið ákváðum við í samvinnu við Báruna að bjóða aftur í ferð í Haukadalsskóg þar sem boðið yrði uppá niðurgreiddar fjórhjólaferðir, gönguferðir grill, söng og fleira. Frá því er skemmst að segja að þrátt fyrir að yfir tvö þúsund manns hafi fengið boð í ferðina þá var þátttaka engin og ferðin því felld niður. Ég viðurkenni það að ég játa mig sigraða og mun ekki leggja til að farið verði í sumarferðir í bráð.

Ekki fór betur fyrir okkar árlega jólaföndri sem alltaf hefur verið vel sótt, en fella varð niður föndrið þar sem einungis tveir skráðu sig til þátttöku.

Staða efnahagsmála er eins alþjóð veit grafalvarleg , Alþýðusamband Íslands boðaði 20 apríl s.l. til fundar með þeim aðilum sem höfðu frumkvæði að stöðugleikasáttmálanum í fyrra. Krafa ASÍ er að Samtök atvinnulífsins komi aftur að borðinu enda sé verkefnið sem gengið var til sl. sumar enn óleyst. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir ljóst að efnhagsaðgerða sé þörf til að koma hjólum atvinnulífisins af stað. Nú er lag eftirjákvæða afgreiðslu AGS á endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á föstudag, segir forseti ASÍ. Allir þeir aðilar sem sátu fundinn, þar á meðal SA, hafa samþykkt að mæta til annars fundar um málið í þessari viku.

ASÍ hefur lagt fram eftirfarandi tillögu um framhald samstarfs aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um aðgerðir til að endurreisa efnahags- og atvinnulífið.

Í aðdraganda kosninganna í apríl 2009 höfðu aðilar vinnumarkaðarins frumkvæði að því að efna til víðtæks samráðs vinnumarkaðarins og stjórnmálaflokkanna um mótun stefnu í efnahags‐, atvinnu‐ og

félagsmálum með það að markmiði að varða leiðina út úr þeim efnahagsþrengingum sem þjóðin stæði frammi fyrir. Sett voru fram drög að aðgerðaáætlun og skilgreind skýr og tölusett markmið umhelstu lykilstærðir eins og vexti, gengi, verðbólgu, ríkisfjármál, lífskjör almennings og atvinnustig.

Með gerð Stöðugleikasáttmálans, sem var afrakstur viðræðna aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um nánari útfærslur þessara markmiða, var lagður grunnur að samstarfi þessara aðila ásamt því að ríkisstjórnin gaf fyrirheit um einstaka atriði.

Þrátt fyrir að margt hafi vel tekist við endurreisn efnahagslífsins, er ljóst að þessi sáttmáli hefur ekki reynst sá vettvangur umræðu og ákvarðanatöku sem vænst var. Ítrekaðar tafir hafa orðið á framvindu áætlunar AGS og stjórnvalda m.a. vegna deilunnar um Icesave reikninganna. Alvarlegar deilur um einstaka þætti sáttmálans hafa markað djúp spor í samstarfið og nýverið sagði

framkvæmdastjórn SA sig formlega frá sáttmálanum, þannig að staða hans er óljós sem stendur.

Forysta ASÍ lýsir því miklum áhyggjum með stöðu þessara mála. Þau markmið sem aðilar vinnumarkaðarins höfðu frumvæði að því að setja um endurreisn efnahags‐ og atvinnulífsins og bætta stöðu heimila og fyrirtækja, standa óbreytt.

Minnt er á að allt að 15.000 manns eru án atvinnu sem stendur og verulegar líkur á að þeim fjölgi enn frekar. Ábyrgð samningsaðila vinnumarkaðar er mikil og væntingar launafólks og almennings standi til þess að við höfum ákveðna forystu um að leiða þjóðina út úr þessum ógöngum. Við þessu verðum við að bregðast – hvað sem viðkemur einstaka deiluefnum – þrátt fyrir vonbrigði með hvernig til hafi tekist.

Því leggur forysta ASÍ til, að í stað þess að einblína á samninginn frá 25. júní 2009 sameinist aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld um að leita sameiginlegra lausna á þeim brýnu verkefnum sem framundan eru. Við væntum þess að ríkisstjórn og Alþingi efni þau atriði sáttmálans, sem þegar er búið að setja í farveg með lagafrumvörpum og ákvörðunum.

Forysta ASÍ leggur því til að efnt verði til náins samstarfs af hálfu aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um nauðsynlegar aðgerðir í efnahags‐ og atvinnumálum á næstu vikum sem hafi það að markmiði að skilgreina þá stöðu efnahagsmála eins og hún blasir við nú, m.a. á grunni afgreiðslu AGS á öðrum hluta efnahagsáætlunarinnar í síðustu viku. Að mati ASÍ er viðfangsefnið að mynda grunn að umfangsmikilli aðgerðaráætlun í efnahags‐ og atvinnumálum sem geti verið sá stökkpallur sem atvinnulífið þarf nauðsynlega á að halda til að fjölga hér störfum og auka tekjur landsmanna. Meðal þeirra atriða sem nauðsynlegt er að bregðast við eru lágt gengi íslensku krónunnar, gjaldeyrishöft og háir vextir, viðvarandi verðbólguþrýstingur, auknar framkvæmdir á vegum hins opinbera með aðkomu lífeyrissjóðanna, staða ríkisfjármála næstu misseri og ár og erfið greiðslu‐ og skuldastaða heimilanna. Einnig leggur ASÍ áherslu á, að unnið verði að krafti í nefnd aðila um siðferði og samfélagslega ábyrgð í endurreisn atvinnulífsins, en skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis og

Siðfræðihópsins undirstrikar mikilvægi þess að settar verði skýrari og skrifaðar leikreglur bæði í stjórnsýslu og atvinnulífi.

Það er skoðun ASÍ að forsenda árangurs sé náið samráð þessara aðila og að umfang og áhrif slíkra aðgerða verði að vera umtalsvert og muni verða ráðandi um afstöðu og þolinmæði launafólks gagnvart frekara samstarfi.

Það er ljóst að kjarasamningar sem lausir verða nú í haust verða erfið glíma. Bogi hins almenna launþega er þegar spenntur til hins ýtrasta þar sem kaupmáttur hefur snarlækkað á rúmum tveimur árum. Þegar er farið að senda okkur tóninn um að krafa atvinnulífsins verði kjaralækkun þar sem fyrirtækin þoli ekki meir og rambi meira en helmingur þeirra á barmi gjaldþrots. Við búum okkur því undir mikla varnarbaráttu til að halda vörð um okkar samning og kjör okkar fólks.

Ekki er hægt annað en að minnast aðeins á stóra bróður okkar verlunarmanna á Suðurlandi þ.e. VR. Það má segja að ríkt hafi hálfgerð óöld þar innan stjórnar félagsins þar sem tvær ólíkar fylkingar hafa barist um völdin og haft misjafnar skoðanir á stjórnun og rekstri stéttarfélaga. Það er ekki á hverjum degi sem stjórn félags lýsir yfir vantrausti á einstaka stjórnarmenn og fellir varaformann úr stóli. Miklar umræður spunnust einnig þegar kosið var til stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs nú í mars í framhaldi af fréttum um kreditkortanotkun lykilstjórnenda hjá VR. Í framboði voru tveir listar, A-listi sem lagður var fram af stjórn og L- listi lagður fram af Birni S. Lárussyni. Það er skemmst frá því að segja að A-listi stjórnar vann yfirburðasigur með 72,3% atkvæða en kjörsókn var afar lítil eða 7,54%

Eins og sagt var frá á síðasta aðalfundi þá hafa átt sér stað viðræður milli félaganna á Suðurlandi um hugsanlega sameiningu félaga. Síðasta sumar drógu Verkalýðsfélag Suðurlands og Drífandi í Vestmannaeyjum sig út þeim viðræðum og héldu þá Verslunarmannafélagið og Báran áfram að tala saman. Hlé hefur nú orðið á þeim viðræðum en vel hefur gengið og aðilar sammála um helstu markmið. Stefnt er að náinni samvinnu þessara félaga enda margt sem tengir okkur saman og um að gera að nýta styrk okkar saman. Hvort verður að eiginlegri sameiningu skal ósagt enda alls ekki tímabært.

Sem dæmi um samvinnu þessara félaga má nefna að við héldum sameiginlegan fund með stjórnum félaganna og þingmönnum Suðurkjördæmis hinn 5. Mars s.l. Á fundinn mættu þingmenn allra flokka og hreyfinga og fórum við yfir stöðu atvinnulífsins á Suðurlandi og skuldavanda heimilanna. Við buðum fulltrúa frá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna til okkar og sýndi hún okkur og þingmönnum svart á hvítu hve alvarleg staða margra skuldugra heimila er. Á fundinum var sérstaklega rætt um framkvæmdir á vegum hins opinbera til að ýta við atvinnulífinu og koma hjólunum af stað. Voru allir sammála um að fundurinn hafi verið góður og stefnt er að slíkum samráðsfundi stéttarfélaganna og þingmanna helst á hverju ári.

Ég hef nú í stuttu máli farið yfir það helsta í starfi félagsins en svona skýrsla getur aldrei orðið tæmandi yfir allt það sem upp kemur á hverjum degi.

Með þessum orðum vil ég þakka öllum sem hér eru fyrir komuna á þennan aðalfund félagsins og hlakka til ársins framundan.

Þessi gamli gráhærði vínarbrauðsétandi karl í jakkafötum kveður því að sinni.

Góðar stundir.


Umsókn um orlofshús
Sækja um hér

 

 
Fréttabréf
Mars 2010
September 2009
Jólin 2009
Júní 2009

Mars 2009
Desember 2008
Júní 2008
Mars 2008