Afgreiðslumaður í verslun
Lágmarkstekjur hjá verslunarmönnum fyrir 171,15 stundir á
mánuði (39,5 stundir á viku) eru kr. 157.000 eftir 1. mars
2009. Útreiknað meðaltímakaup hjá hlutastarfsfólki verður að lágmarki að
vera 917,32 kr.
Dæmi 1. Afgreiðslumaður í fullu starfi á byrjunarlaunum
fyrstu 4 mánuðina.
Viðkomandi á ekki rétt á uppbót þar sem rétturinn skapast
eftir fjögurra mánaða starf hjá sama atvinnurekanda.
Dæmi 2. Afgreiðslumaður í fullu starfi á byrjunarlaunum, kr.
142.450, eftir fjögurra mánaða starf
Viðkomandi á rétt á greiðslu uppbótar mánaðarlega sem nemur
muninum á launataxtanum og 157.000 kr., þ.e. 14.440 kr.
Dæmi 3. Afgreiðslumaður í hlutastarfi sem vinnur eingöngu
dagvinnu
Afgreiðslumaður fær greitt tímakaup, 837,94 kr., samkvæmt
byrjunarlaunum kjarasamnings verslunarmanna. Vinnutími hans er frá 13:00-18:00
alla virka daga eða 25 stundir á viku sem eru 108,3 stundir á mánuði að
jafnaði. Engin eftirvinna er unnin. Starfsmaðurinn rétt á uppbót vegna hvers
vinnutíma, sem nemur mismuninum á lágmarks meðaltímakaupi, 917,32 og þeim
dagvinnutímakaupstaxta sem unnið er eftir, þ.e. 79,38 kr. Mánaðarleg uppbót er
því 8.597 kr. (108,3 * 79,38)
Dæmi 4. Afgreiðslumaður í hlutastarfi sem vinnur eftirvinnu
Afgreiðslumaður fær greitt tímakaup í dagvinnu, 837,94 kr.,
og tímakaup í eftirvinnu, 1.173,08, samkvæmt byrjunarlaunum kjarasamnings
verslunarmanna. Vinnutími hans er frá 13:00-19:00 alla virka daga sem gera 130
stundir (108,3 í dv. og 21,7 í ev.) á mánuði að jafnaði. Meðaltímakaupið fyrir þennan vinnutíma er
893,80 kr. Starfsmaðurinn á því rétt á 23,52 kr. (917,32-893,80) uppbót vegna
hvers vinnutíma eða 3.058 kr. (23,52*130)
Dæmi 5. Afgreiðslumaður sem vinnur aðeins á laugardögum
Afgreiðslumaður fær greitt tímakaup í eftirvinnu,
1.173,08, samkvæmt byrjunarlaunum kjarasamnings verslunarmanna. Það er hærra en
lágmarks meðaltímakaup (917,32) og á hann því ekki rétt á uppbótinni. |