VR og LÍV skrifuðu undir nýjan
kjarasamning við Samtök atvinnulífsins þann 17. febrúar. Unnið er að því að uppfæra upplýsingar á heimasíðu VMS til samræmis við þennan nýja samning.
Hér að neðan er stiklað á stóru í kjarasamningi LÍV og SA.
- Launaþróunartrygging, eða svokallaður baksýnisspegill, er 5,5% í ár fyrir þá sem voru í starfi hjá sama atvinnurekanda frá 1. janúar 2007. Þetta þýðir að þeir sem hafa fengið launahækkun frá þeim tíma sem er minni en 5,5% fá það sem uppá vantar. Þeir starfsmenn sem hafa fengið meira fá hins vegar ekki hækkun. Starfsmenn sem hófu á störf á bilinu 2. janúar 2007 til 30. september 2007 fá samsvarandi launaþróunartryggingu en þó að hámarki 4,5%.
- Þann 1. mars 2009 verður launaþróunartryggingin 3,5%.
- Þann 1. janúar 2010 verður almenn 2,5% launahækkun.
- Launataxtar hækka um 18 þúsund krónur við undirskrift, um 13.500 krónur þann 1. mars 2009 og 6.500 krónur þann 1. janúar 2010. Sjá launataxta fyrir árið 2008.
- Orlofsdögum fjölgar í 30 daga hjá þeim sem hafa unnið í sama fyrirtæki í 10 ár. Þetta ákvæði kemur til framkvæmda frá og með árinu 2009 en í ár er orlof að hámarki 29 dagar hjá þessum starfsmönnum. Þeir sem hafa unnið í 5 ár hjá sama fyrirtæki fá 26 orlofsdaga í ár og 27 á næsta ári.
- Slysatrygging er víðtækari í þessum samningi en þeim fyrri, vátryggingin nær m.a. til 18 ára barna í stað 17 ára áður, hún gildir í ferðum á vegum atvinnurekenda innanlands og utan og nær til slysa sem verða við íþróttaiðkun. Örorku- og dánarbætur hækka mikið.
- Veikindadagar vegna veikinda barna verða 12 í staðinn fyrir 7 og 10 daga eins og nú er.
- Framlag vinnuveitenda í starfsmenntasjóð hækkar úr 0,15% í 0,20% frá 1.6.2008, þ.e. vegna launa fyrir júní 2008.
- Nýr endurhæfingarsjóður verður settur á laggirnar og munu atvinnurekendur greiða til hans 0,13% af launum frá 1.6.2008, þ.e. vegna launa fyrir júní 2008.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á stöðugleika og má þar helsta nefna eftirfarandi atriði:
- Persónuafsláttur hækkar um sjö þúsund krónur á næstu þremur árum umfram almenna verðuppfærslu.
- Skerðingarmörk barnabóta verða hækkuð úr 100 þúsund krónur á mánuði fyrir einstaklinga í 120 þúsund á þessu ári og 150 þúsund krónur á næsta ári.
- Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir frekari aðgerðum til lækkunar vöruverðs, sérstaklega á matvælum.
Sjá kjarasamninginn í heild sinni og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Samningurinn sem hér er birtur er með fyrirvara um lokafrágang, ef misræmi er í texta gildir texti í Niðurstöður viðræðna samninganefnda ASÍ og SA um sameiginleg mál. Sjá einnig kynningu ASÍ á heildarniðurstöðum samningaviðræðnanna og kynningu á slysatryggingu launafólks.