Mandat lögmannsstofa sinnir lögfræðilegum verkefnum fyrir Verslunarmannafélag Suðurlands og félagsmenn þess.
Aðra hverja viku gefst félagsmönnum kostur á viðtali við lögmann á skrifstofu félagsins, sér að kostnaðarlausu.
Tímapantanir í síma 480-5000
Félagsmönnum Verslunarmannafélag Suðurlands er líka veittur afsláttur af lögfræðikostnaði og geta þeir snúið sér beint til stofunnar telji þeir sig þurfa á þjónustu lögmanns að halda. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu stofunnar: www.mandat.is og í síma 5-11-11-90.
Þessi þjónusta, sem í boði er fyrir félagsmenn Verslunarmannafélag Suðurlands, er ekki einungis á sviði vinnuréttar og verkalýðsmála heldur á flestum þeim sviðum sem félagsmenn geta þurft á lögmanni að halda. Til dæmis vegna slysa, vinnuslysa og umferðarslysa, fasteignagalla, hjónaskilnaða og líka ef þörf gerist fyrir verjanda í refsimáli. |