Forsíða Kjarasamningur 2008Lágmarkslaun LögfræðiþjónustaSkýrsla stjórnar 2010FréttirMyndasafnLög félagsinsUm okkur Hafa samband
 
Umsóknir
Úr starfsmenntasjóði
Inntökubeiðni í félagið
Um styrk úr sjúkrasjóði
Um dánarbætur
Um sjúkradagpeninga
Skilagrein
Orlofssjóður

Orlofshúsin

Rangársel
Flúðasel
 
 

 
Fréttir


Lægsta verðbólga í þrjú ár
Enn dregur úr verðbólgunni.  Á ársgrundvelli var hún 4,5% í ágúst samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Verðbólga fer nú minnkandi og gera má ráð fyrir áframhaldandi þróun í þá átt á næstu mánuðum. Verðbólgan var síðast um 4,5% haustið 2007.
Lesa meira...

Er ríkisstjórninni treystandi?
Á fundi miðstjórnar ASÍ á fimmtudag kom fram að ríkisstjórnin hefði boðað aðila Stöðuleikasáttmálans á fund til að ræða aðkomu að nýrri samstarfsáætlun.  Þar kom fram af hálfu fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar að reynslan af Stöðugleikasáttmálanum og framgangi hans væri ekki með þeim hætti að hún gæfi tilefni til bjartsýni varðandi samstarf stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar.
Lesa meira...

Trúnaðarmannanámskeið I.4. þrep
Trúnaðarmannanámskeið I. 4. þrep verður haldið í salnum á Austurvegi 56 16. og 17. september n.k. Þegar hafa trúnaðarmenn verið boðaðir bréflega á námskeiðið.

13. til 15. október fer síðan af stað aftur trúnaðarmannanámskeið I 1. þrep fyrir nýja trúnaðarmenn og þá sem eiga 1. þrep eftir.

Námskeiðin eru haldin í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu fyrir trúnaðarmenn Verslunarmannafélags Suðurlands, Báruna stéttarfélag og Verkalýðsfélag Suðurlands. 

Lesa meira...

Mikill verðmunur á skólabókum

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskóla í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Farið var í 6 verslanir og skoðað verð á 27 algengum nýjum bókum. Einnig voru skoðaðir 10 titlar á 4 skiptibókamörkuðum.

Mál og menning við Laugveg var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum eða á 17 titlum af 27 og Penninn–Eymundsson var með hæsta verðið á 15 titlum af 27.

Griffill var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í þessari könnun en 15 titlar af 27 voru á besta verðinu hjá þeim. Á eftir þeim kemur Bóksala stúdenta þar sem 9 titlar af 27 voru ódýrastir, en þar er veittur 10% fastur afsláttur af íslenskum bókum sem reiknaður var inn í verðið.

Mesti verðmunurinn á nýrri bók var 103,4% á enskubókinni„The Lord of the flies“, en bókin kostar 981 kr. í Bóksölu stúdenta en 1.995 kr. í Pennanum-Eymundsson og Griffli.

Minnstur verðmunur á nýrri bók var 9,6% á félagsfræðibókinni“ Hvernig veit ég að ég veit?“, en bókin kostar 3.610 kr. í Pennanum-Eymundsson og 3.295 kr. í Griffli.


Lesa meira...

Samkomulag um vinnustaðaskírteini tekur gildi
Þann 15. ágúst sl. tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.
Lesa meira...
Eldri fréttir
Umsókn um orlofshús
Sækja um hér

 

 
Fréttabréf
Mars 2010
September 2009
Jólin 2009
Júní 2009

Mars 2009
Desember 2008
Júní 2008
Mars 2008