Á fundi
Stéttarfélaganna með þingmönnum var farið yfir atvinnumál á Suðurlandi og stöðu
heimilanna. Sérstaklega var höfðað til atvinnurekenda , sveitarstjórnarmanna og
félagsmanna að mæta á fundinn. Fundargestir voru innan við eitt hundrað.
Á fundinn mættu 5 af þingmönnum Suðurkjördæmis þau:
Oddný G. Harðardóttir frá
Samfylkingu
Róbert Marshall frá
Samfylkingu
Anna Margrét
Guðjónsdóttir frá Samfylkingu
Sigurður Ingi
Jóhannsson frá Framsóknarflokki
Margrét
Tryggvadóttir frá
Hreyfingunni
Aðrir
þinmenn boðuðu forföll.
Farið var yfir nokkur stór og brýn verkefni á Suðurlandi en
þykir heimamönnum sem lítið hafi þokast og fá verkefni framundan.
Stór verkefni á vegum ríkisins sem eru á lokastigi voru
nefnd og spurt var hvort áætlanir
stæðust. Það eru m.a.
Lyngdalsheiði, Landeyjahyöfn, Suðurstrandavegur og
Hvítárbrú. Svöruðu þingmenn því til að öll þessi verkefni væru á áætlun og að
ljúka.
Spurt var um fleiri stór verkefni í vegagerð sem breytt gætu
miklu í atvinnuástandi á svæðinu eins og Suðurlandsveg með nýja brú yfir
Ölfusá, Varnargarða við Vík og tvöföldun á 22 einbreiðum brúm austan Selfoss.
Fram kom í svörum þingmanna að fyrsti hluti Suðurlandsvegar sem átti að byrja á
í maí er í kæruferli svo framkvæmdir frestast af þeim sökum, Varnargarðar við
Vík bíða skipulagsvinnu og breikka á eina einbreiða brú á þessu ári og tvær á
næstu fjórum árum samkvæmt vegaáætlun.
Rætt var um önnur mannaflsfrek verkefni s.s. gagnaver á Reykjanesi, Búðarhálsvirkjun,
virkjanir í Þjórsá, Kísilhreinsunarverksmiðju í Þorlákshöfn, stækkun
fangelsisins á Litla-Hrauni, stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn og viðhald
opinberra bygginga. Búið er að skrifa undir samning um gagnaverið og
Búðarhálsvirkjun er í kæruferli og frestast því eitthvað. Nokkur umræða varð um
kísilhreinsunarverksmiðjuna en samkv. upplýsingum frá Iðnaðaráðuneyti verður
hún staðsett í Grindavík en ekki í Þorlákshöfn. Eftir fundinn fengust þær
upplýsingar að um tvær verksmiður væri að ræða aðra í Grindavík og hina í
Þorlákshöfn. Ekki gátu þingmenn staðfest aðrar framkvæmdir sem um var spurt, en
stækkun fangelsis er nú í nefnd.
Rætt var um stöðuna á úboðsmarkaði og undirboð og nýsköpun í
atvinnu. Fram kom hjá þingmönnum að á Suðurlandi væri áberandi að menntunarstig
atvinnulausra væri lægra en annars staðar á landinu og bent á að mun minna væri
sótt í styrki vegna rannsókna og nýsköpunar á svæðinu. Taldi þingmaður að
sóknartækifæri sunnlendinga felist í meiri menntun og ferðaþjónustu.
Rætt var um nýlegan dóm hæstaréttar vegna gengistryggðra
lána og skuldavanda heimilanna. Bentu þingmenn á að skuldavandi væri ekki nýtt
fyrirbæri og benti m.a. á að skuldir árið 2004 hafi verið meiri en 2008. Skuldavandi
íslendinga væri langvarandi og hluti af kúltúr okkar íslendinga. Allir þingmenn
voru sammála um að taka þurfi á vandanum og bentu á nýsamþykkt lög um
umboðsmann skuldara og bætta réttarstöðu skuldara gagnvart lánadrottnum. Nokkur
umræða varð um gjaldmiðil okkar íslendinga og benti þingmaður á að frá 1970
vefur verðbólga verið 82.000% á íslensku krónunni.
Rætt var um hlutverk alþingis og aðkomu hagsmunasamtaka að
ákvörðunum stjórnvalda.
Kjarasamningar á vinnumarkaði renna flestir út næsta vetur,
formenn stéttarfélaganna búast við átökum á vinnumarkaði og kom fram hjá þingmönnum
von um að ekki verði ófriður á vinnumarkaði, og töldu það muni hafa slæm áhrif
á stöðu efnahagsmála. Stéttarfélögin bentu á að ríkið hafi ekki staðið við þá
samninga sem gerðir hafa verið og því vnadséð hvernig komast megi hjá átökum á
vinnumarkaði. Lágmarkslaun eru alltof lá og millitekjuhópurinn hefur ekki
bolmagn til að taka á sig aukna skattbyði.
Stéttarfélögin stefna að nýjum fundi með þingmönnum í haust
í aðdraganda kjarasamninga.