Stéttarfélögin á Suðurlandi boða til fundar með
þingmönnum kjördæmisins á Hótel Selfossi 30. Júní klukkan 20. Fundurinn verður öllum opinn og sérstök hvatning til félagsmanna, atvinnurekenda og
sveitarstjórnarfólks til að mæta á fundinn.
Á fundinum verðu rætt um alvarlega stöðu atvinnumála og ráðaleysi ríkisstjórnarinnar þegar kemur að nýframkvæmdum, skuldamálum heimila og fyrirtækja. Staðan er því miður sú að fyrirtækin eru að leggja upp laupanna hvert af öðru vegna verkefnaskorts.
Valdimar Bragason verður fundarstjóri á fundinum.
Hægt verður að beina fyrirspurnum til þingmanna.
Fundurinn var auglýstur í Dagskránni sem kom út fimmtudaginn 24. júní.
Við hvetjum alla til að mæta á fundinn og koma sínum sjónarmiðum á framfæri, einnig er hægt að senda tölvupóst til félagsins á netfangið margret@vms.is og eru allar ábendingar vel þegnar.