Forsíða Kjarasamningur 2008Lágmarkslaun LögfræðiþjónustaSkýrsla stjórnar 2010FréttirMyndasafnLög félagsinsUm okkur Hafa samband
 
Umsóknir
Úr starfsmenntasjóði
Inntökubeiðni í félagið
Um styrk úr sjúkrasjóði
Um dánarbætur
Um sjúkradagpeninga
Skilagrein
Orlofssjóður

Orlofshúsin

Rangársel
Flúðasel
 
 

 

23.6.2010 10:34

Lítið bólar á verðlækkun á innfluttum neysluvörum

Þrátt fyrir samfellda styrkingu krónunnar frá áramótum bólar enn lítið á verðlækkunum á innfluttum neysluvörum. Forsvarsmenn verslunarinnar hafa fullyrt að verslunin hafi almennt tekið á sig afkomuskerðingu vegna veikra stöðu krónunnar og að það ráðist einkum af veltuhraða hversu hratt styrking á gengi krónunnar gæti í vöruverði. Sé verðþróun innfluttra vara skoðuð frá ársbyrjun 2008 þegar krónan tók að veikjast má sjá að verðlag á helstu flokkum innfluttra neysluvara hækkaði framan af nokkurn veginn samhliða veikara gengi krónunnar en hefur nú, þrátt fyrir styrkingu, ýmist haldið áfram að hækka eða nánast staðið óbreytt undanfarna mánuði.

Flestir innfluttir vöruflokkar hafa hækkað um eða yfir 50% undanfarið eitt og hálft ár á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst um ríflega 70%. Innfluttar mat- og drykkjarvörur hafa hækkað enn meira eða um tæplega 70% frá því í ársbyjun 2008 og jafnvel þótt ætla megi að veltuharði þessara vara sé að jafnaði mikill hefur verðlag þeirra nánat verið óbreytt undanfarna mánuði þrátt fyrir hagstæðara gengi. Endanlegt verð innfluttra vara ræðst auk innkaupsverðs af ýmsum innlendum kostnaðarþáttum sem ljóst er að hafa ekki hækkað í viðlíka takti og gengi krónunnar. Þannig eru engin tilefni til þess að verðlag innfluttra vara hækki í fullu samræmi við veikara gengi krónunnar og ekki verður af þessu ráðið að veik staða krónunnar sé það eina sem skýri miklar verðhækknir á innfluttum vörum undanfarin misseri. Af þessu verður heldur ekki séð að sú afkomuskerðing sem forsvarsmenn verslunarinnar tala um að verslunin hafi tekið á sig vegna gengislækkunarinnar sé almennt til komin vegna þess að haldið hafi verið aftur af verðhækkunum til neytenda. Neytendur spyrja því með réttu hvenæar búast megi við því að merki um bætta stöðu krónunnar sjáist í vöruverði og mun verðlagseftirlit ASÍ fylgjast náið með þróuninni á næstunni.


Tekið af vef ASÍ.




Til baka
Umsókn um orlofshús
Sækja um hér

 

Launatöflur 2009

Gildir frá 1.nóvember 2009
Meðf. launatafla gildir frá 1.nóvember 2009.

Desemberuppbótin 2009 er 51.800,-
Smellið á linkinn hér að neðan til að skoða PDF skjal.
Launatöflur kjarasamnings

 
Fréttabréf
Mars 2010
September 2009
Jólin 2009
Júní 2009

Mars 2009
Desember 2008
Júní 2008
Mars 2008